Til umsagnar - Tillaga til þingsályktunar um vernd, velferð og veiðar villtra fugla og spendýra, 282. mál
- Details
- Published on 20 February 2014
- Hits: 1572
SKOTVÍS hefur borist eftirfarandi mál til umsagnar frá nefndasviði Alþingis. Ábendingar skotveiðimanna til stjórnar SKOTVÍS berist á netfangið This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. fyrir 7. mars 2014. Ennfremur hvetur SKOTVÍS skotveiðimenn að senda inn eigin umsagnir um þingsályktunartillögu þessa.
20. febrúar 2014
Frá nefndasviði Alþingis.
Ágæti viðtakandi.
Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir yður til umsagnar tillögu til þingsályktunar um vernd, velferð og veiðar villtra fugla og spendýra, 282. mál.
Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 11. mars á netfangið This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.
Ef engar athugasemdir eru þarf ekki að senda sérstaka tilkynningu þess efnis.
Þingskjalið er hægt að sækja á vef Alþingis: http://www.althingi.is/altext/
Vakin er athygli á því að nefndastarf fastanefnda Alþingis er rafrænt. Óskað er eftir að umsagnir og erindi verði send á rafrænu formi.
Bent skal á að umsagnir og gögn um málið birtast á vef Alþingis undir fyrirsögninni Innsend erindi á síðu viðkomandi þingmáls.
Leiðbeiningar um ritun umsagna er að finna á vef Alþingis á slóðinni www.althingi.is/vefur/
Kveðja,
Sigrún Helga Sigurjónsdóttir
ritari nefndasviðs Alþingis
Tags: þess, senda, skotvís, mars, umsagnir, umsagnar, nefndasviði, netfangið, erindi, berist, fugla, alþingis